Black Ghost- Uppskrift

Price range: 450 kr. through 4.465 kr.

Black Ghost er klassísk og öflug fluga bæði í Urriða og Sjóbyrting. Þetta er fluga sem er alltaf gott að hafa í boxinu. Þessi fluga er hnýtt á Ahrex NS 115 Deep Streamer númer #4 en gott er að hafa Black Ghost í nokkrum stærðum og útfærslum.

Upprunalega var Black Ghost hnýtt með kinnar með junglecock fjöðrum en í dag er allur gangur á því hvort hún sé hnýtt með kinnum eða ekki.

Öngull: Ahrex NS 115 Deep Streamer – #4.

Þráður: POWER THREAD MEDIUM – Svartur.

Skott og skegg: Saltwater Neck Hackle – Fl. Gulur.

Búkur: Floss – Svart.

Glitur í búk: Uni Mylar #14 – Silfur/Gull.

Vængur: Saltwater Neck Hackle – Hvítur.

UV-Lakk á haus: Solarez Bone Dry- Clear

UV Nano Light

Allt efni sem þarf í þessa flugu er hér fyrir neðan.