Þyngdur Peacock – Uppskrift
400 kr. – 4.465 kr.Price range: 400 kr. through 4.465 kr.
Peacock þarf varla að kynna og er hún líklegast ein af þeim flugum sem allir eiga. Hún er gríðalega sterk þegar að kemur að bleikju og urriða. Hún er einföld og fljóthnýtt.
Þessi Peacock er hnýttur á KAMASAN B175- TROUT HEAVY #10 en gott er að hafa hann frá #8 – #12. Hann er þyngdur með Lead Wire Flat 0,4x1mm sem er flatur og ótrúlega þægilegur að vinna með. Hann heldur búknum fallegum og gerir það að verkum að flugan þarf ekki kúluhaus. Lead Wire Flat 0,4x1mm er aðeins breiðari en Lead Wire Flat 0,2x1mm sem gerir hann hentugan fyrir stærri púpur og straumflugur, á meðan Lead Wire Flat 0,2x1mm hentar betur fyrir smærri púpur.
Hotspotið eru úr Tag Thread – F. Hot Orange. Hann er mjög næmur fyrir UV-ljósi og bregst sterklega við því. Hann er mjög hentugur í margar flugur sem eru með Hot Spot.
Öngull: KAMASAN B175- TROUT HEAVY – #10.
Þráður: POWER THREAD MEDIUM – Svartur.
Þynging í Búk: Lead Wire Flat 0,4x1mm
Búkur: Peacock Herl
Hot Spot við haus: Tag Thread – F. Hot Orange.
Lím: Gulff Minuteman Glue
UV-Lakk: Solarez Bone Dry- Clear einnig hægt að nota Gulff Eco Fly Tying Varnish
UV- Ljós:UV Nano Light
